Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Jólaundirbúningur

Á hverju ári lofa ég sjálfri mér vera skipulagðari  með jólaundirbúninginn á næsta áriWoundering  Undantekningalaust skal ég þó alltaf vera á síðustu stundu með eitthvaðAngry.  Ég held bara svei mér þá að engin breyting verði á þessu þetta árið.  En hvað með það.   Jólin koma þó svo að ég sé ekki búin að öllu.Halo   Nú er stefnan sett á London með mínum ekta.  Ætlum að slappa örlítið af og taka út jólastemminguna hjá Englendingum.   Kannski að maður skelli sér á einn eða tvo jólamarkaði, en ég er víst búin að lofa því að taka ekkert verslunaræði Halo   Það er nefnilega svo skrítið með mann að þó maður eigi meira en nóg af öllu og þurfi nú ekki að bæta neinu við, þá hafa flugferðir og fjarlæg lönd áhrif á kaupgenin í manniW00t  Spurning að biðja Kára Stef að tékka á þessu.  


Ég á vin :)

Og gæti ekki átt hann betri.   Elsku Ragga mín, takk fyrir að vilja vera bloggvinur minn, það er mér mikils virði InLove

Trú og trúleysi

Miklar umræður hafa verið í netheimum um trú og trúleysi.   Siðmennt og Vantrú eru félög sem mikið er um rætt og fólk innan þeirra raða hafa verið virkir í umræðu undanfarna daga.

Það er allt gott um það að segja, hér ríkir mál- og skoðanafrelsi án þess að nokkur þurfi að hafa áhyggjur af því að láta skoðanir sínar í ljós.

Þess vegna ætla ég að láta mína skoðun í ljós hér meðJ

Í gegnum árin hefur kristnifræði verið kennd í skólum hér á landi (enda bara eðlilegt þar sem um opinbera þjóðartrú er að ræða).   Í múslimaríkjum er kóraninn kenndur og það er bara gott enda er þeirra þjóðtrú trúin á Múhameð og Kóraninn.  

Ég held að enginn verði verri manneskja af því að læra kristinfræði í grunnskóla.  Ég geri fastlega ráð fyrir því að allir meðlimir ( sem nú berjast á móti kristnifræðikennslu) í Siðmennt og Vantrú hafi þurft að læra þessi fræði í sinni skólagöngu. 

Þegar ég var í grunnskóla, sem er nú nokkuð langt síðan, þá voru kenndar biblíusögur, goðafræði og gleymum ekki þróunarsögunni.  Þ.e. maðurinn er komin af öpum.

Það sem mér finnst furðulegast af þessu öllu er að félagar í þessum hópum, þ.e.  Siðmennt og Vantrú hafi svo lítið álit á sínum afkomendum að halda að þeir geti sjálfir ekki haft sínar eigin skoðanir, þrátt fyrir því sem fyrir þeim er haft á opinberum vettvangi.   Þeir hafa alla vegna haft þær.   Treystið börnunum sjálfum til þess að velja rétt.

Lúthersk trú er okkar þjóðtrú og þannig er það baraJ   Ef við værum múslimar, þá væri hér allt í látum vegna ádeilna á að kenna Kóraninn í skólum, þ.e. ef það væri leyfilegt að vera með mótmæli J


Aðventu-átak

Þórdís Tinna,  Moggabloggari númer eitt,  er engin venjuleg kona.

Hún er skemmtileg, alltaf að hjálpa öðrum og sér það jákvæða við nánast allar kringumstæður.

Eins og flestir vita, á hún við alvarleg veikindi að stríða. 

Það þarf ekkert að kynna Þórdísi Tinnu, svo þekkt er hún orðin fyrir að vera hún sjálf.

Nú er rétti tíminn til að sýna Þórdísi Tinnu stuðning í verki. 

Sýnum samstöðu og styðjum við hana og dóttur hennar, Kolbrúnu Ragnheiði, svo þær geti notið hátíðanna, lausar við fjárhagsáhyggjur.  Þúsundkall eða Fimmþúsundkall..... allt hjálpar.

 

Bankareikningur

0140-05- 015735.     Kt.101268-4039


Blómið

Blómið
Blómið

Berglind heiti ég.  Áhugamál mín eru allt milli himins og jarðar

Tölvupóstur og MSN: berglind1@hotmail.com

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband