Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Mótmæli

Þennan póst fékk ég sendan og kem honum hér með á framfæri.  

Halló allir saman

Eins og fram hefur komið í fréttum sjónvarps og útvarpinu hafa bílstjórar á
vörubílum og treilerum efnt til mótmæla vegna hækkun eldsneytis og munu þeir
gera þetta áfram næstu daga.   Mér finnst þetta meiri háttar hjá þeim og
synd að við Íslendingar skulum ekki standa meira saman þegar eitthvað svona
ber að dyrum.  Í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi, svo eitthvað sé nefnt, þá
stendur hver þjóð saman og gera eitthvað rótækt og því þykir mér synd að við
svona lítil þjóð skulum ekki geta staðið betur saman.  Ég skora því á ykkur,
alla landsmenn, að standa saman og mótmælum allri þessari  hækkun sem er á
leið til okkar og sem komin er og flauta bara eitthvað skemmtilegt ef þið
lendið í biðröð með stóru bílunum og einnig skora ég heldur betur á ykkur að
fara EKKI í eina einustu búð þriðjudaginn 1. apríl.  Það er alveg hægt að
versla á mánudaginn og miðvikudaginn en við
 skulum standa saman og fara EKKI í búð á þriðjudaginn vegna þeirra hækkunar
sem eru að koma á mjólkurafurðina og fleira  :)

Hingað til hef ég verið frekar léleg í að taka þátt, en eftir ferð mína í Krónuna í gær held að ég taki nú bara þátt í þessum mótmælumAngry


Ekki vildi ég vera ..........

í sporum foreldra krakka sem eiga við hegðunarvandamál að stríða.   Held að mitt fyrsta verk væri að taka þau úr skóla og hafa þau undir mínu eftirliti allan daginn.   En má ég taka þau úr skóla????  Gæti ég sótt um undanþágu frá skólaþátttöku á þeim forsendum að ég væri of fátæk til að greiða ef barnið gerir eitthvað af sér?    Hvað með íþróttirnar?  Borgar sig nokkuð að leyfa þeim að taka þátt í þeim ef ske kynni að þau misstu stjórn á skapi sínu??? 

Ef þessi dómur kemur til með að standa í Hæstarétti þá er ég ansi hrædd um að dómstólarnir fái nóg að gera á næstunni.   Veit nefnilega um nokkur tilvik þar sem nemendur hafa gengið í skrokk á kennurum og starfsfólki skóla, svo illa að fólk hefur verið óvinnufært einhverja daga á eftir.


mbl.is Dæmd til að greiða kennara 10 milljónir í bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blómið

Blómið
Blómið

Berglind heiti ég.  Áhugamál mín eru allt milli himins og jarðar

Tölvupóstur og MSN: berglind1@hotmail.com

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband