7.9.2007 | 10:38
Útsýnið mitt
Mér er gersamlega ómögulegt að skilja þessa áráttu að reisa blokkir við sjávarsíðuna. Ég var með þetta fína útsýni yfir gamla bæinn í Hafnarfirði, en nú eru þar komnar blokkir sem loka á öll gömlu fallegu húsin. Annars finnst mér þessi blokkarbyggð þarna á stæði gömlu Bæjarútgerðarinnar ekki sérlega traustvekjandi. Afi gamli tók þátt í að gera bryggjuna. Samkvæmt honum þá er uppfyllingin þarna frekar létt í sér og stálþilin sem þeir settu þarna niður áttu ekki að endast nema í fimmtíu ár. Sagðist ekki myndi búa þarna þó honum yrði gefin íbúð . En verkfræðingarnir hljóta að vita hvað þeir eru að gera. Annars er það búið að berast mér til eyrna að ein byggingin sé farin að síga
..
En hvað veit ég svo sem, enda ekki með verkfræðimenntun
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.