Leita í fréttum mbl.is

8. janúar

Já þá er hann runninn upp þessi merkisdagur.   Þennan dag fæddust Elvis Presley, David Bowie, Shirley Bassey, ég og fleiri Grin   Dagurinn búin að líða hratt í símanum að taka við hamingjuóskum frá ættingjum og vinum.  Vááá hvað margir hafa hugsað til afmælisbarnsins.   Takk fyrir það InLove  Að sjálfsögðu var enn ein stórmáltíðin í tilefni dagsins og allir á heimilinu standa á blístri.   Ætla svo að  bjóða því nánasta í kaffi á laugardaginn þannig að veislurnar halda áfram á þessu heimili.   Spurning hvenær maður getur farið í venjulega rútínu því svo taka við þorrablót hægri vinstri með tilheyrandi áti Woundering  Mikið finnast manni þeir atburðir sem hafa átt sér stað á fyrstu dögum þessa árs sorglegir.    Þrír alvarlegir brunar á höfuðborgarsvæðinu og í tveimur tilfellum hefur verið kveikt í viljandiCrying  Hvað gengur fólki eiginlega til með svona morðtilræðum.  Því þetta er að sjálfsögðu ekkert annaðDevil   Vonandi nást þeir sem ábyrgðina bera.   Á jákvæðu nótunum er þó það að Margrét Frímannsdóttir leysir af sem forstöðumaður á Litla-Hrauni.   Klár og frábær manneskja sem er jarðbundin og hefur verið ötull talsmaður fyrir bættri aðstöðu og aðbúnaði fyrir fanga hér á landi.  Málið er nefnilega það að þetta er betrunarvist, þ.e. fangar eiga að fá þá aðstoð að þeir geti komið betri menn aftur út í þjóðfélagið, en ekki geymslustaður fyrir menn til að setja þá aftur út á sama stað og þeir komu innWoundering   Það er allavegna mitt álit Halo

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Til hamingju með afmælið

Ragnheiður , 8.1.2008 kl. 20:37

2 Smámynd: Blómið

Takk fyrir það Ragga mín

Blómið, 8.1.2008 kl. 20:40

3 Smámynd: Blómið

Sæl kæra móðir.   Hrikalega glöð að sjá þig hér .   Svo þú þurfir ekki að kalla mig Blómið þá heiti ég Berglind, og MSN adressan er hér við hliðina á.   Ég á tvo táninga og eiginmann.  Bý í Hafnarfirði og er á fertugsaldri.  Nær fertugu að vísu

Blómið, 8.1.2008 kl. 21:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Blómið

Blómið
Blómið

Berglind heiti ég.  Áhugamál mín eru allt milli himins og jarðar

Tölvupóstur og MSN: berglind1@hotmail.com

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband